Baylee Woodward er nítján ára og hefur átt ansi skemmtilegt og ævintýralegt síðasta ár. Hún fékk vinnu á snekkju í fyrra og hefur meira og minna verið að ferðast síðan þá. Í ferðum sínum tekur hún mikið af töff og skemmtilegum myndum og deilir þeim á Instagram. Fyrrverandi kærasti hennar var ferðafélagi hennar og var því á næstum öllum myndunum.
Því miður endaði samband þeirra alls ekki vel. Kærastinn hennar var einnig yfirmaður hennar á snekkjunni og rak hana.
„Sambandsslitin voru erfið vegna þess að hann var ferðafélaginn minn í ár, við vorum saman bókstaflega allan sólarhringinn og síðan rak hann mig bara upp úr þurru,“
sagði hún við Buzzfeed. Henni fannst hundfúlt að fyrrverandi kærastinn væri á svona mörgum flottum myndum og fann snilldar lausn til að halda áfram að deila myndunum. Getur þú séð hvað hún gerði?
Baylee sagðist hafa ákveðið að breyta myndunum svo hún gæti „horft til baka og hlegið að þessu öllu.“
Baylee deildi myndunum á Facebook og hafa þær fengið mikið lof netverja. „Ég elska hvað ég hef fengið mikinn stuðning,“ sagði hún. Hún hefur nú fengið vinnu á snekkju og ætlar eftir það að ferðast til Evrópu og Asíu ef hún finnur annan ferðafélaga.