Þegar kvenkyns barþjónn er vingjarnlegur við þig þá er það af því að það er hluti af vinnunni hennar að vera kurteis við kúnna. Ekki vegna þess að hún er svo ótrúlega hrifin af þér. En einhverjir kúnnar á The Beer Cellar í Devon, Bretlandi, virðast eiga erfittt með að skilja þetta. Barinn ákvað því að setja upp leiðbeinandi skilti til að bókstaflega stafa þetta fyrir kúnnana.
„Við settum skiltið upp eftir mjög óþægilega helgi fyrir þremur mánuðum,“
sagði barþjónninn Lauren Dwe við Mashable. Aðspurð hvernig kúnnahópurinn hafi brugðist við skiltinu segir hún að fólk hlæji að þessu og styðji skilaboð skiltisins.
„Einu prósenti finnst þetta smá móðgandi, sem mér finnst fyndið því það er fólkið sem skiltið er miðað að.“