Nexus forsýnir Wonder Woman í kvöld í Sambíóunum Egilshöll klukkan 22:30. Myndin verður aðeins sýnd í 2D og miðaverð er 1800 krónur. Myndin verður sýnd án hlés og með íslenskum texta. Á morgun verður Wonder Woman síðan frumsýnd.
Wonder Woman er fyrsta ofurhetjumyndin með kvenkyns aðalsöguhetju í meira en áratug. Myndin er leikstýrð af Patty Jenkins og er hún ein af þremur konum til að leikstýra leikinni mynd með fjárhagsáætlun yfir hundrað milljón Bandaríkjadollara. DC og Marvel hafa samtals gert 19 ofurhetjumyndir og eiga myndirnar eitt sameiginlegt. Aðalhlutverkin eru leikin af karlmönnum. Wonder Woman er fyrsta ofurhetjumyndin með konu í aðalhlutverki. Það er þá vert að spyrja sig hvort þetta sé einungis undantekning eða hvort þetta sé stórt og mikilvægt skref fyrir konur í ofurhetju og sci-fi heiminum sem er að mestu stjórnað af karlmönnum.
Myndin er að fá rosalega dóma, en hún fær bestu einkunn af DC myndum síðan The Dark Knight. Myndin fær 97 prósent á Rotten Tomatoes og fær einnig betri einkunn en Marvel ofurhetjumyndir eins og Iron Man, Guardians of the Galaxy og Marvel‘s The Avengers.
Við vitum ekki með ykkur en við getum ekki beðið eftir að sjá myndina. Horfðu á stikluna fyrir Wonder Woman hér fyrir neðan.
Hér getur þú skoðað viðburð Nexus fyrir forsýningu Wonder Woman.