Dagana 31. maí til 4. júní verður bronsverðlaunahafi Bocuse d´or 2017, Viktor Örn Andrésson, gestakokkur á Apotekinu. Til mikils má vænta af Viktori en í boði verður sjö rétta smakkseðill sem á eftir að kitla bragðlauka matargesta. Viktor sem hefur verið í landsliði matreiðslumanna frá árinu 2009 var kjörinn matreiðslumaður Íslands árið 2013 og matreiðslumaður Norðurlandanna árið 2014.
Síðasti gestakokkur á Apotekinu, Julian Medina, vakti mikla athygli á matarhátíðinni Food & Fun á þessu ári er honum var meinað að bera fram engissprettur af heilbrigðiseftirlitinu. Viktor ætlar að halda sig við öllu hefðbundnara hráefni en kollegi hans og má til dæmis finna á seðlinum léttgrafið og hægeldað bleikjuterrine, kolagrillaða íslenska nautalund og jarðaber með reyktum rjómaosti. Hér fyrir neðan má sjá matseðil Viktors en verðið er 9.900 krónur.
Íslenskur hörpudiskur
Blómkál, yuzu vinaigrette
Grillaður humar
Estragon alioli
Létt grafið og hægeldað bleikju terrine
Bleikjutartar, dill-aioli, brenndur blaðlaukur, bleikju kavíar
Langtíma elduð og stökksteikt svínasíða
Gerjaður hvítlaukur, ostrusveppir, súrsæt sósa
Túnfiskur og foie gras
Shitake sveppir og sesam sósa
Kolagrilluð íslensk nautalund
Jarðskokkar, nautagljái með kantarellum og trufflum
Jarðaber og reyktur rjómaostur
Sítrónukrem, estragon olía og karamelluð qionoafræ
*Þessi færsla var unnin í samstarfi við Apótek resturant