Þrjár stelpur á aldrinum þrettán til fimmtán ára skipa hljómsveitina MíóTríó frá Hveragerði. Þær eru Gígja Marín Þorsteinsdóttir, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir og Hrafnhildur Birna Hallgrímsdóttir. MíóTríó var að gefa frá sér myndband við eldhressan og skemmtilegan sumarsmell. Ef þetta kemur þér ekki í sumarskap þá veit ég ekki hvað gerir það! Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.
Það verður spennandi að sjá hvað kemur næst frá þessum ótrúlega hæfileikaríku stelpum! Hér getur þú fylgst með MíóTríó á Facebook.