Ólafur Guðmundsson kom út úr blætisskápnum með látum árið 2014 þegar hann var viðmælandi minn í viðtali í tímaritinu MAN, sem svo var endurbirt á Kynlífspressunni. Óli hefur áhuga á pollagöllum – með öðrum orðum þá æsa þeir hann kynferðislega – og hann er fjarri því að vera einn í heiminum með viðlíka áhuga.
Óli var gestur minn í Rauða sófanum og þar ræddum við um blæti, blætla, og ýmislegt fleira.