Lífsstíll okkar hefur oft mikil áhrif á heilsu okkar og velferð. Það er margt í venjum okkar sem hafa slæm áhrif á tannheilsuna og æskilegt að breyta þeim.
Það er slæmur siður að láta börn sofna út frá mjólkurpela. Það eykur líkurnar á tannskemmdum að sofna með sykurinn úr mjólkinni á tönnunum. Best er að gefa vatn í pelann á nóttunni.
Margir gnísta tönnum í svefni en það veldur þrýsting á tennurnar,tanngarðinn,kjálkavöðvana og kjálkaliðinn. Þetta getur leitt til álagseinkenna eins og höfuðverkja,kjálkaverkja og slit á tönnum. Að gnísta tönnum er oft tengt vinnu-eða andlegu álagi. Hægt er að fá sérstaka góma hjá tannlækni sem minnka líkur á skemmdum. Eins hjálpar sumum að nota slökunartækni fyrir svefninn.
Hringir eða skart í tungu getur valdið alverlegum skaða í munnholi og á tönnum. Það getur brotnað upp úr tönnum eða komið sprungur vegna þrýtings frá skartinu. Eins getur það nuddað tannholdið svo það hörfar upp sem veldur auknu næmi og kuli og eins getur losnað um tönn. Skart ýtir einnig undir aukinn bakteriuvöxt í munni með tilheyrandi sýkingahættu.
Hátt sykurinnihald í brjóstsykri er mjög slæmt fyrir tennurnar. Sykurinn ýtir undir bakteríuvöxt í munnholi og sýrumyndun. Sýran eyðir glerungi tannanna og aukinn bakteriuvöxtur eykur líkur á sýkingum í munnholi. Eins er brjóstsykurinn harður og getur brotið upp úr tönn þegar hann er bruddur.
Allt sykrað nammi er vont fyrir tennurnar en verst er gúmmí, karamellur og annað seigt nammi sem festist á milli tannanna og niður í skorum þar sem erfitt er að hreinsa upp.
Hátt sykurhlutfall og sýrustig í gosdrykkjum er sérstaklega slæmt fyrir tennurnar. Að baða tennurnar í sykri eykur líkur á tannskemmdum auk þess sem sýran í drykknum eyðir glerjungnum sem skemmir tennurnar og getur valdið auknu næmi og kuli. Best er að sleppa gosdrykkju en annars getur það hjálpað að drekka í gegnum rör og koma þannig í veg fyrir að tennurnar baðist í gosi.
Þessir drykkir eru litlu betri fyrir tennurnar en gosdrykkir,með háu sykurhlutfalli og háu sýrustigi.
Með tíðu narti yfir daginn eru alltaf matarleifar í tönnum og sýrustig í munni er stöðugt hátt sem eykur líkur á tannskemmdum. Gott er að velja mat sem hreinsar frekar tennur og myndar síður skán á tennurnar t.d. gulrætur,selleri og epli.
Tóbak í hvaða formi sem er ertir slímhúð munnholsins og eykur líkur á tannholdsbólgum,það truflar blóðrásina og bælir ónæmiskefið. Það litar tennurnar,veldur andremmu og breytir bragðskyni. Tóbak er þekktur krabbameinsvaldur og getur valdið krabbameini í munnholi.
Það er hætta á að brjóta upp úr tönn eða fá sprungu þegar tennur eru notaðar til að opna eða rífa umbúðir. Eins þegar hlutir eins og blýantar eru nagaðir.
Almennt gildir að góð umhirða kemur í veg fyrir tannskemmdir. Bursta tennur kvölds og morgna,nota tannþráð.