Húðflúrarinn Mo Ganji frá Berlín er meistari í að gera húðflúr sem eru ein samfelld lína en eru samt sem áður ótrúlega fallegar og listrænar myndir. Þó svo hann hafi byrjað að flúra fyrst árið 2014, hefur hann skapað sér sérstöðu í bransanum með þessari mínímalísku nálgun.
„Allt hérna kemur frá sömu orkunni. Allir eru einn. Ein samfelld orka fer áfram og áfram og áfram,“
sagði hann við Washington Post um hugmyndina á bak við listina. Mo Ganji veit eitt og annað um einfaldan lífsstíl. Hann hætti í fyrirtækjavinnu þar sem hann naut mikillar velgengni til að eltast við ástríðu sína.