Myndband sem sýnir mismunandi skepnur fá sér að drekka úr vantsfötu hefur slegið í gegn á netinu. Við sjáum skepnur eins og býflugur, kjúklinga, asna og kanínu. Og já býflugunum var bjargað úr vatninu!
John Wells á heiðurinn að myndbandinu en hann er nýlega fluttur frá New York í „sveitina.“ Hann er kannski langt frá fólksfjöldanum í stórborginni en hann er nú ekki einn eins og sést á meðfylgjandi myndbandi.