Eftir langa bið er nýja lagið hennar Miley Cyrus „Malibu“ loks komið út ásamt tónlistarmyndbandi. Lagið fjallar um samband hennar við unnusta sinn Liam Hemsworth og af hverju þau þurftu að fara í pásu fyrir þremur árum.
„Ég þurfti að breytast svo mikið. Og að breytast með einhverjum öðrum er ekki að breytast, það er of erfitt. Allt í einu ertu alveg „ég kannast ekki við þig lengur.“ Við þurftum að verða aftur ástfangin,“
sagði Miley í viðtali við Billboard. Ný plata frá Miley er væntanleg og segir hún að sú plata er algjörlega á hennar forsendum.
„Ég veit nákvæmlega hvar ég er núna. Ég veit hvað ég vill að þessi plata verður.“
Hlustaðu á nýja lagið hennar hér fyrir neðan!