Nú er sumarið komið og því kominn tími til að draga fram alla klassísku Essie sumarlitina! Essie lökkin eru fullkomin fyrir sumarið þar sem þau gefa nöglunum æðislegan lit og frábæra endingu. Hér má sjá nokkra af okkar uppáhalds Essie sumarlitum sem fást alltaf á sölustöðum Essie.
Tart deco er litur maímánaðar hjá Essie og það ekki af ástæðulausu! Þessi æðislegi appelsínuguli litur hefur ratað inni í hjörtu margra hér á landi enda fullkominn sumarlitur.
Það þurfa allir að eiga einn glæsilegan nude lit fyrir sumarið og Sand Tropez er einmitt sá litur! Þessi gullfallegi litur passar við hvaða veður sem er og hentar því frábærlega fyrir íslenska sumarið..
Hinn klassíski Mint Candy apple er ómætstæðilegur yfir sumartímann þegar að fallegir pastellitir heilla hvað mest.
Þetta lakk kannast nú margir við en Bikini So Teeny liturinn frá Essie er einn sá allra vinsælasti í heiminum og var lengi vel sá mest seldi. Hann kom fyrst á markað árið 2012 sem hluti af sumarlínu hjá merkinu sem var einmitt nefnd eftir litnum sjálfum. Fullkominn ljósblár litur með örfínum glimmerögnum sem minna á glitrandi sjóinn.
Hvítt lakk á neglurnar klikkar aldrei yfir sumartímann. Blanc frá Essie er þéttur og flottur hvítur litur með góðri endingu.
Fyrir þá sem vilja ekki jafn bjartan lit og Mint Candy Apple en vilja samt skarta dýrindis grænum lit á nöglunum þá er Turquoise og Caicos klárlega málið.
Þessi lillablái litur ætti að heilla hvaða aðdáanda fjólublárra lakka upp úr skónum.
Þá er bara að kíkja á næsta sölustað Essie og virða fyrir sér alla okkar æðislegu liti og ákveð hverjir munu verða hluti af þínu sumarsafni.