Mæðradagurinn er 14. maí og af því tilefni hefur Skittles gefið út stórfurðulega auglýsingu. Auglýsingin byrjar nokkuð eðlilega, móðir og sonur að borða saman Skittles. En bíddu bara, þetta verður fljótlega mjög furðulegt og mörgum gæti þótt auglýsingin frekar óþægileg.
Horfðu á hana hér fyrir neðan.
Þetta er ekki í fyrsta skipti að Skittles gefur frá sér undarlega auglýsingu. Hér fyrir neðan er auglýsing frá 2015 og maður getur ekki annað en spurt sig hvernig þetta tengist sælgæti. Samt sem áður þá virkar þetta, þessar auglýsingar eru brenndar í minni okkar að eilífu.