Æðislegu Hydra Genius nýjungarnar frá L’Oréal eru komnar til landsins í tæka tíð fyrir sumarið. Hydra Genius eru æðisleg ný og næringarrík rakakrem í formi vökva sem eru innblásin af asískum húðvörum.
Formúla Hydra Genius rakakremanna er einstök þar sem kremið breytist í hálfgert vatn þegar það kemst í snertingu við húðina. Kremið inniheldur Aloe vatn og Hyaluronic sýru sem sjá til þess að húðin dregur það í sig við fyrstu snertinu og tryggir 72 klukkustunda raka! Þar sem húðin dregur í sig rakann um leið og kremið er sett á hana er tilvalið að bera það á húðina undir farða. Kremið inniheldur líka magn af Glycerin en það grípur í farðann og sér til þess að hann endist lengur. Það má því vel nota kremið sem fullkominn rakagefandi farðagrunn.
Hydra Genius rakakremin koma í þremur mismunandi útgáfum til að þjóna mörgum húðgerðum. Því ættu flestir ef ekki allir að geta fundið sér Hydra Genius krem fyrir sínar þarfir. Kremin eru frá vinstri til hægri; Venjuleg//Blönduð húð, Þurr//Viðkvæm húð og Venjuleg//Þurr húð.
Kremið er borið á andlitið bæði kvölds og morgna eitt og sér eða á eftir serumi. Setjið eina pumpu af kreminu í lófann og dreifið úr því á andlitið og hálsinn með hringlaga hreyfingum. Með stöðugri notkun kremsins gerir það húðina heilbrigða, ljómandi og stútfulla af raka. Þetta er svo sannarlega fullkomið rakakrem fyrir sumarið!
Við hvetjum ykkur að kíkja á næsta sölustað L’Oréal og kynna ykkur þessa æðislegu nýjung.