Framhaldsskólaneminn Megan Flaherty frá New Jersey ákvað að mæta á skóladansleikinn á hugsanlega frumlegasta eða jafnvel furðulegasta máta sem við höfum séð. Hún mætti í líkkistu! Að sjálfsögðu þá einnig í líkbíl. Megan sagði við AP News að hún vildi aðallega hafa gaman á dansleiknum og spurði strákinn sem fór með henni á ballið væri með einhver sérstök plön fyrir þau. Svo var ekki og hann var tilbúinn að taka þátt í athæfinu með henni.
Líkkistan var þó opin og hljómar á meðfylgjandi myndbandi eins og samnemendur hennar hafi haft gaman að uppátækinu. Myndbandið og myndir af innkomunni hafa vakið athygli á netinu og hafa margir grínast með að Megan var „drop dead gorgeous,“ meðan öðrum finnst athæfið óviðeigandi og ónærgætið. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.