Það eru komnar tvær vikur síðan við fjölluðum um mögulegt samband Kylie Jenner og rapparans Travis Scott. Kylie er yngst Kardashian-Jenner klansins en er aftur á móti allra helst í sviðsljósi slúðurmiðla. Hún og Tyga fyrrverandi kærasti hennar hættu saman í mars eftir um þriggja ára samband og stuttu seinna fóru sögusagnir að ganga um að Kylie væri að slá sér upp með Travis.
Þau fóru að sjást sífellt oftar saman í kjölfarið, eins og í fremstu röð á körfuboltaleik og hönd í hönd á Coachella. Hvorugt þeirra hefur tjáð sig um sambandið við fjölmiðla og hafa myndirnar af þeim hingað til verið óskýrar eða alsaklausar. En nú hafa nýjar myndir af Kylie og Travis skotið upp kollinum þar sem þau eru frekar ástúðleg við hvort annað. E! News greinir frá. Það lítur út fyrir að þau geri sér grein fyrir að það sé verið að mynda þau og eru ekkert að fela rómantíkina. Þau eru meira að segja klædd í stíl! Það er spurning ef samband þeirra heldur áfram að blómstra hvort Travis verður hluti af nýju raunveruleikaþáttunum hennar Kylie „Life with Kylie“ sem verða sýndir í sumar.
Sjáðu myndirnar af turtildúfum hér fyrir neðan.