fbpx
Mánudagur 24.febrúar 2025

ENGLA PRIMER

Ritstjórn Bleikt
Mánudaginn 8. maí 2017 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mig langaði að sýna ykkur vöru frá NYX sem ég er búin að vera að nota fáránlega mikið undanfarna mánuði. Varan er Angel Veil Skin Perfecting Primerinn en hann fékk ég í jólagjöf frá merkinu síðastliðinn desember.

Primerinn er silíkon farðagrunnur svo ef þið fílið ekki svoleiðis grunna þá hentar þessi ykkur örugglega ekki, en ef þið hinsvegar elskið þá eða vitið ekki hvað það þýðir þá skuluð þið endilega lesa meira. Silíkon farðagrunnar sitja ofan á húðinni eins og hula þar sem þeir fylla upp í húðholur og fínar línur og sjá til þess að allur farði sem er settur ofan á hann renni léttilega og vel á húðina. Angel Veil farðagrunnurinn er hinn fullkomni silíkon grunnur en ég hef mikið verið að nota hann einan og sér bara.

Þá ber ég dálítið af honum á T-svæðið mitt en þar sem að grunnurinn er hvítur birtir hann örlítið yfir andlitinu mínu og húðholurnar mínar verða nánast ósýnilegar – án gríns! Hann mattar líka húðina svo að ég verð ekki olíumikið á T-svæðinu mínu yfir daginn. Angel Veil er líka talinn vera fullkomin eftirlíking af Veil Mineral primernum frá Hourglass en hann er töluvert dýrari en þessi svo ef þið viljið ekki skella ykkur út í þá fjárfestingu þá mæli ég með að þið prófið þennan.

Ég hef líka eitthvað notað grunninn undir farða og hann virkar vel í það en satt best að segja hef ég mest notað hann einan og sér þar sem hann gefur húðinni minni svo fallega áferð að mér finnst ég ekki þurfa að setja farða yfir hana. Það eru 30 ml í hverri túpu svo maður fær nóg af farðagrunni fyrir peninginn. Mæli með þessum fyrir sumarið!

Rannveig H.

-Færslan birtist fyrst á síðunni Belle.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 klukkutímum

Táknmálstúlkur RÚV sló í gegn á Söngvakeppninni – „Fæ alltaf jafn mikla gæsahúð!“

Táknmálstúlkur RÚV sló í gegn á Söngvakeppninni – „Fæ alltaf jafn mikla gæsahúð!“
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Sjáðu þegar Messi missti algjörlega stjórn á sér um helgina

Sjáðu þegar Messi missti algjörlega stjórn á sér um helgina
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Carragher segir Liverpool þurfa að styrkja þrjár stöður þrátt fyrir frábært gengi

Carragher segir Liverpool þurfa að styrkja þrjár stöður þrátt fyrir frábært gengi
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Egill sorgmæddur og spyr: „Hvað er hægt að gera?“

Egill sorgmæddur og spyr: „Hvað er hægt að gera?“
Pressan
Fyrir 6 klukkutímum

Fundu nýja kórónuveiru sem getur smitað fólk á sama hátt og COVID-19

Fundu nýja kórónuveiru sem getur smitað fólk á sama hátt og COVID-19
Pressan
Fyrir 7 klukkutímum

Níræð kona svalt til bana á heimili sínu eftir að sonur hennar lést

Níræð kona svalt til bana á heimili sínu eftir að sonur hennar lést

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.