Paddington og Butler hafa verið bestu vinir frá fyrsta degi. Paddington er hundur af tegundinni shar pei og kötturinn Butler kom óvænt inn í líf fjölskyldunnar í byrjun 2014. Butler var of ungur til að vera frá móður sinni og dróst að Paddington og umhyggjunni sem hann fékk frá honum.
Samband þeirra er einstakt og sitja vinirnir oft saman fyrir framan gluggann eða kúra saman upp í rúmi. Paddington hefur meira að segja gert misheppnaða tilraun til að nota kattakassann.
Vinátta þeirra er falleg og einstök. Það sést greinilega á þessum fallegu myndum hér fyrir neðan sem eigandi Paddington og Butler setti inn á Bored Panda.