Uppskriftir mæðgnanna slá alltaf í gegn og þessi er engin undantekning. Þær deildu gómsætri uppskrift að heimagerðu ravioli með sætkartöflufyllingu og steiktum sveppum, hesilhnetum og ólífuolíu, algjör himnasæla! Þessi réttur er í sérstöku uppáhaldi hjá mæðgunum og fengum við leyfi til að deila færslunni hér með lesendum okkar. Njótið!
Heimagert pasta hljómar kannski eins og frekar mikið vesen. En í rauninni er það ekkert flóknara en hver önnur matargerð. Það er bara með þetta eins og það sem maður hefur ekki prófað áður, fyrsta skipið fer oft svolítið í að átta sig á aðferðinni og svo verður þetta ekkert mál. Og þetta ravioli er algjörlega þess virði!
Í þetta sinn notuðum við heimalagaðan jurtaost í fyllinguna, en það gerum við ekki alltaf. (Hér er uppskriftin okkar að jurtaosti, við áttum til svolítinn afgang í ísskápnum sem var tilvalið að nota í ravioli). Í fullkomnum heimi myndum við mæðgur velja okkur að útbúa allan mat frá grunni, en auðvitað höfum við ekki alltaf tíma til þess frekar en aðrir, og förum oft styttri leiðina að hlutunum. Þegar maður er að prófa að gera heimagert pasta í fyrsta sinn, þá er kannski bara snjallt að einbeita sér að einu nýju atriði í einu og nota þann ost sem er við hendina. Úrvalið af jurtaostum er orðið svakalega gott í búðunum, okkar uppáhalds er gerður úr möndlum. En notið endilega bara þann smurost sem ykkur þykir bestur.
Við trúum því að það sé gott fyrir heilsuna að útbúa stóran hluta af matnum okkar frá grunni, en hins vegar er alveg örugglega ekki heilsusamlegt að fá samviskubit yfir því að gera það ekki. Við bara reynum okkar besta, og svo njótum við þess í botn að borða það sem við veljum okkur hverju sinni, heimagert eða ekki. Okkar reynsla er líka sú að þegar við virkilega njótum hvers bita erum við miklu líklegri til að hætta þegar við höfum fengið nóg. Þegar lífið er á fleygiferð er auðvelt að gleyma þessu einfalda ráði (lesist: við erum alltaf að gleyma því sjálfar) svo þess vegna finnst okkur ágætt að minna okkur á:
En vindum okkur þá í aðalatriðið, sem er þetta ljúffenga ravioli! Við byrjum á að hræra í pastadeig, og á meðan deigið hvílir sig útbúum við fyllinguna. Svo fletjum við deigið út, setjum fyllinguna í og þá er það tilbúið í pottinn, og það þarf bara að sjóða í 3 mínútur.
Aðferðin: Fletjum deigið út og skerum út hringi eftir glasi eða undirskál (10 cm þvermál)
Komum fyllingunni fyrir
Lokum hverjum hring með fingrunum (þétt puttaför)
Hálfmánar tilbúnir í pottinn
Svo er bara að setja ravioli varlega ofan í pott með sjóðandi vatni í örstutta stund og steikja sveppi á meðan. Og þá er kominn matur!
Ravioli deig
1 1/2 b fínt spelt
1 1/2 b gróft spelt
3/4 tsk sjávarsalt
1 b vatn
2 msk jómfrúar ólífuolía
1-2 msk kjúklingabaunamjöl/maísmjöl
300g bakaðar sætar kartöflur (bakið ca 400g í ofni)
100g möndluostur eða annar vegan smurostur
75g ristaðar heslihnetur, gróft saxaðar
1 msk næringarger
1 tsk rósmarín
1 tsk sjávarsaltflögur
1 tsk smátt saxaður chili eða ¼ tsk chiliflögur
Ofan á:
200g sveppir, skornir í sneiðar og steiktir á pönnu í smávegis olíu
50g ristaðar heslihnetur
2 msk steinselja, söxuð
smá sjávarsaltflögur
skvetta af jómfrúar ólífuolíu