Ellen DeGeneres er líklegi gjafmildasti þáttastjórnandi í sjónvarpi í dag. Hún er sífellt að koma fólki í þáttunum hjá sér á óvart með ótrúlegum gjöfum og er ein af nýjustu gjöfunum hennar mögulega sú hugulsamasta til þessa. Í síðustu viku var hinn tólf ára gamli Reuben de Maid í þættinum hjá Ellen og söng lagið „And I Am Telling You I‘m Not Going“ úr Dreamgirls. Röddin hans er úr annarri veröld og heillaði hann áhorfendur upp úr skónum með framkomu sinni. Eftir flutninginn settist hann niður með Ellen til að tala um hina ástríðuna í lífi sínu, snyrtivörur.
„Síðan ég var átta ára hef ég verið svo áhugasamur. Ég var vanur að horfa á myndbönd í símanum mínum svo klukkustundum skipti, læra af kennslumyndböndum og bloggsíðum, sjá hvernig það ætti að gera þetta,“
sagði Reuben við Ellen. Hann segir Ellen frá því þegar hann var lagður í einelti í skólanum fyrir að farða sig og hafa áhuga á snyrtivörum.
„Ég var kýldur og það var sparkað í mig. Eftir tvo mánuði reyndi ég að hrista þetta af mér en það virkar ekki. Þannig ég stóð upp gegn þeim og sagði mömmu minni frá.“
Reuben skipti um skóla og taka bekkjarfélagarnir honum sem þeim ótrúlega hæfileikaríka strák sem hann er. Hann á sér marga drauma og er einn þeirra að byrja með sína eigin YouTube rás. Til að hjálpa honum þá gaf Ellen honum allt sem hann þarf til að koma sér af stað og viðbrögðin hans eru eitthvað sem á eftir að hlýja þér um hjartarætur.