Við erum yfir okkur spennt fyrir sjöundu þáttaröð af Game Of Thrones. Biðin hefur nú verið nógu löng og það styttist óðum í sýningu fyrsta þáttarins, sem verður 16. júlí. Hingað til höfum við ekki fengið að sjá mikið úr nýjustu þáttaröðinni, en við erum búin að sjá búninga aðalpersónanna og smá stiklu.
Nú hefur HBO gert Game of Thrones aðdáendur ánægða, en framleiðandinn var að senda frá sér myndir úr sjöundu seríu. Sjáðu myndirnar hér fyrir neðan.
Við erum að farast úr spenningi! Hver ætlar að fylgjast með sjöundu seríu?