Í myndbandsklippu úr Keeping Up With the Kardashian, segir Kris frá vonbrigðum sínum og reiði gagnvart fyrrverandi eiginmanni sínum Caitlyn Jenner eftir að hafa lesið fyrirframeintak af ævisögu Caitlyn. Ævisagan mun heita „The Secrets of My Life“ og var Kris allt annað en sátt eftir að hafa lesið hvað Caitlyn hafði um hana og samband þeirra að segja.
„Ég las þetta og í rauninni var það eina jákvæða sem hún hafði að segja að ég var frábær félagslega, í veislu. einu sinni,“
sagði Kris við dætur sínar Kim og Khloé Kardashian. „En samt, hann var giftur þér lengst,“ sagði Kim. „Þannig það meikar ekki sens.“
„Allt sem hún segir er búið til. Af hverju þarf allt að vera að Kris er algjör tussa og fáviti?“
sagði Kris. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan þegar Kris ræðir þetta við Kim og Khloé, þær ræða meðal annars um það að Caitlyn heldur því fram í ævisögu sinni að Kris hafi vitað að Bruce væri trans áður en hún svaf hjá honum í fyrsta skipti.