Alþjóðlegi vöffludagurinn var haldinn hátíðlegur þann 25. mars og að því tilefni er vel við hæfi að birta uppskrift að vöfflum sem er í miklu uppáhaldi hjá fjölskyldunni. Vöfflurnar eru stökkar og bragðgóðar og einfaldar í gerð og góða með sultu og rjóma, nú eða jafnvel vanilluís.
2 egg
1 dl sykur
2 dl súrmjólk
1 1/2 dl vatn
350 g hveiti
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk natron
1 tsk kardimommudropar
125 g bráðið smjör