Biðin styttist óðum eftir fimmtu þáttaröð af „Orange Is the New Black.“ Fyrir þau sem hafa fylgst með þáttunum þá er það ekkert leyndarmál að síðasta sería endaði þvílíkt spennandi. Það er uppþot í fangelsinu, Daya miðar byssu á fangavörð og allar í kringum hana öskra og hvetja hana til að skjóta hann.
Nú loksins er komin fyrsta stiklan þar sem við fáum að skyggnast aðeins í nýjustu þáttaröðina. Öll þáttaröðin mun koma í heild sinni á Netflix 9. júní.
Við munum láta ykkur vita um leið og fleiri fréttir eða stiklur berast af „Orange Is the New Black“