Margverðlaunaða leikkonan Kate Winslet er gjörsamlega með puttann á púlsinum þegar kemur að því að styrkja jákvæða líkamsímynd og hvetja konur til að læra að elska líkamann sinn. Hún opnaði sig um sín eigin persónulegu vandamál varðandi líkamsímynd sína og baráttuna við að sætta sig við líkama sinn. Í ræðu á WE Day í Bretlandi, sagði hún frá því að hafa verið kölluð „blubber“ og að sagt hafi verið við hana að hún ætti að vera „ánægð og sætta sig við hlutverk sem feita stelpan.“
Hún sagði að henni hafi ekki fundist hún duga. Henni fannst eins og hún „liti ekki rétt út,“ að hún væri ekki með „fullkominn líkama“ og heyrði sjaldan eitthvað jákvætt um líkama sinn. En hún barðist á móti og trúði á sig sjálfa. „Einn daginn fékk ég svo hlutverk Rose í Titanic,“ sagði Kate og síðan þá hefur hún leikið í mörgum kvikmyndum sem hafa notið mikilla vinsælda.
„Hjálpið ykkur sjálfum, verið þið sjálf. Og hlustið, verið besta útgáfan af því sanna sjálfi sem þið getið verið,“ sagði hún í fyrirlestrinum.