Háskólakórinn heldur vortónleika sína í Neskirkju fimmtudaginn 6. apríl kl. 20.00. Á tónleikunum flytur kórinn m.a. kórverk eftir Claudio Monteverdi, Ralph Vaughan Williams, Jón Leifs, Hafliða Hallgrímsson og Báru Grímsdóttur auk fjölda annarra íslenskra tónskálda. Tónleikarnir eru liður í undirbúningi kórsins fyrir söngferðalag hans til Austurríkis og Tékklands í sumar, en í Tékklandi mun kórinn taka þátt í kórakeppninni Hátíð söngvanna í Olomouc, þar sem kórar víðs vegar úr veröldinni munu mætast. Stjórnandi Háskólakórsins er Gunnsteinn Ólafsson.
Háskólakórinn var stofnaður haustið 1972. Kórinn hefur frá upphafi sungið við helstu samkomur Háskóla Íslands auk þess að halda sjálfstæða tónleika. Í kórnum syngja nemendur úr öllum deildum og öðrum menntastofnunum á háskólastigi, íslenskir sem erlendir. Kórinn hefur frumflutt fjölda íslenskra verka og kynnt þau innan lands og utan. Kórinn gaf út árið 2011 geisladiskinn Álfavísur í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands og fyrir jólin 2015 kom út geisladiskurinn Kvöldlokka með íslenskum verkum, m.a. eftir Jórunni Viðar, Jón Leifs, Þóru Marteinsdóttur og Báru Grímsdóttur. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins leikur með á diskinum að hluta.
Gunnsteinn Ólafsson er stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar unga fólksins. Hann stundaði fiðlunám við Tónlistarskóla Kópavogs, síðar Tónlistarskólann í Reykjavík og stjórnaði Kór Menntaskólans í Kópavogi samhliða námi þar. Hann nam tónsmíðar hjá Jóni Ásgeirssyni og stundaði síðan framhaldsnám í fjögur ár við Franz Liszt-tónlistarakademíuna í Búdapest og önnur fjögur ár í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Freiburg í Þýskalandi. Gunnsteinn starfar jöfnum höndum sem kór- og hljómsveitarstjóri, tónlistarkennari og tónskáld. Ævintýraópera hans og Böðvars Guðmundssonar, Baldursbrá, var frumsýnd í Hörpu haustið 2015. Þá hefur Gunnsteinn safnað íslenskum þjóðlögum fyrir Þjóðlagasetrið á Siglufirði og stýrt Þjóðlagahátíð þar í bæ frá 2000.