Pia Wurtzbach var krýnd Ungfrú Alheimur í desember í fyrra. Keppnin var sérstaklega eftirminnanleg þar sem kynnir keppninnar gerði vandræðaleg mistök þegar hann tilkynnti um úrslitin. Hann greindi frá því að Ungfrú Kólumbía hefði sigrað en tveimur mínútum síðar kom í ljós að Ungfrú Filippseyjar, hún Pia, væri raunverulegi sigurvegarinn.
Pia er ekki aðeins gullfalleg heldur líka einstaklega skemmtileg, en hún blandar þessum eiginleikum sínum í myndbandi þar sem hún deilir hinum ýmsu fegurðarráðum og sýnir hvernig hún farðar sig fyrir fegurðarsamkeppnir, en hún farðar sig alltaf sjálf. Horfðu á það hér fyrir neðan.