Tiffany Day er sautján ára nemandi frá Kansas og var á dögunum í ferðalagi um Ítalíu með kórnum í skólanum sínum. Hún rakst á brunn þegar hún var í Feneyjum og stóðst ekki mátið að prufa hljómburðinn í honum. Hún syngur lagið „Hallelujah,“ sígilt meistaraverk sem Leonard Cohen færði okkur.
Myndbandið af henni syngja í brunninum hefur fengið yfir 500 þúsund áhorf, sjáðu af hverju hér fyrir neðan, ótrúlegt!