Brauð er matur en getur einnig verið fínasti koddi. Bread Face, eða brauðfés, er Instagram síða þar sem kona skellir og nuddar andlitinu sínu í mismunandi brauðtegundir. Verður ekki einfaldara, og fólk er að elska þetta.
„Ég fýla tilfinninguna við þetta!“ sagði hún við Buzzfeed Life. „Og ég hélt að þetta myndi kannski gera einhvern hamingjusaman þarna úti.“
Hún deilir myndböndum á Instagram þar sem hún framkvæmir þessa athöfn, alltaf með mismunandi brauð og lag undir.
„Brauðið er það sem ég er með hjá mér, eða sem ég er að fara að borða. Ég tek tillögum en listinn er orðinn frekar langur.“
https://www.instagram.com/p/BR1wmSsFILi/?taken-by=breadfaceblog
„Brauðfés er það sem það er. Ef þetta er eitthvað sem fólk hlær að, rúllar augunum vegna, eða þetta kveikir í þeim – þá er það allt frábært! Ég skil það.“
https://www.instagram.com/p/BMeilZ-A4RE/?taken-by=breadfaceblog
Fólk hefur beðið um að kaupa brauðin sem hún er búin að nudda sér í, sem henni finnst „svo æðislegt.“
„Ég held að ef þú myndir spyrja hvern sem er úti á götu hvort þeir væru til að sjá stelpu nudda andlitinu sínu í brauð, myndu þeir örugglega segja já. Alla vega einu sinni.“
https://www.instagram.com/p/BK2D3cJARGI/?taken-by=breadfaceblog
Til að sjá fleiri myndbönd frá Brauðfési, kíktu hér.