Við þekkjum öll „carpool karaoke“ og höfum séð stjörnur eins og Justin Bieber, Madonnu, Lady Gaga og Selenu Gomez setjast í bíl með James Corden og syngja okkur til mikillar skemmtunar.
Nú fór Victoria Beckham í carpool karaoke með James Corden, en þessi útgáfa er óvænt og öðruvísi!
Í staðinn fyrir klassíska carpool karaoke sniðið sem við erum öll vön, þá gerðu Victoria Beckham og James Corden stiklu fyrir þykjustunni endurgerð kvikmyndarinnar Mannequin sem kom út árið 1987. Myndbandið er sprenghlægilegt og stórkostlegt!