fbpx
Föstudagur 21.febrúar 2025

13 hlutir sem þú ættir alls ekki að gera á meðan þú stundar kynlíf

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 28. mars 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hegðun, atferli og framkoma í ástarleikjum er lykilatriði ef við ætlum að ná að tengjast bólfélögum okkar á fallegan hátt. Grunnurinn að góðu kynlífi er auðvitað að geta tjáð þarfir sínar og mörk, og á sama tíma að hafa rænu á að hlusta á það sem mótaðilinn þarf og hvar mörk hans liggja.
Það eru þó nokkrir hlutir sem ætti ALDREI að gera í rúminu. Hér er listi sem gæti bjargað þér einn daginn frá miklum vandræðagangi og jafnvel tryggt það að ástin haldist í lífi þínu.

Gerðu þessa 13 hluti ALDREI í ástarleik:

1. Spila Candy-crush í símanum þínum.

„Leggðu frá þér símann og taktu þrjú hæg skref aftur á bak“

2. Gleyma kossum

„Kysstu mig krúttið þitt“

3. Skipta skyndilega úr sexý svefnherbergisröddinni yfir í hversdagslegu „tala við þjónustufulltrúa í bankanum-röddina“

Voða hress þjónustufulltrúi!

4. Vape-a (rafreykja). Það er lúðalegt og ber með sér vonda lykt.

„Nei Sólveig, ég er búin að segja þér að þetta kveikir ekki í mér“

5. Prjóna eða gera Sudoku á meðan þú ert tekin/aftan frá.

„Komdu elskan, byrjum bara, ég er alveg að verða búin með umferðina“

6. Ruglast á nöfnum – mjög mikilvægt að segja rétt nafn í hita leiksins. Nema auðvitað að þið séuð í hlutverkaleik sem Donald og Melania (til dæmis).

Kveikir kannski í einhverjum…?

7. Svara símtali frá mömmu þinni (eða bara hvaða símtali sem er)

„Ég var alveg að fá það!“

8. Byrja skyndilega að tala finnsku (nema þú sért Finni)

Við elskum samt Finnland!

9. Svara tölvupósti

„Lárus, þú lofaðir mér munngælum!“

10. Fitja upp á nefið og segja „hvaða lykt er þetta?“

„Varstu að borða hákarl?“

10. Fá fullnægingu, spretta upp og segja „jæja, leikurinn er að byrja“, RÉTT ÁÐUR en mótaðilinn fær það (að því gefnu að fullnæging sé mótaðilanum mikilvæg, en eins og lesendur ættu að vita er fullnæging ekki endilega æðsta markmið allra ástarleikja)

„Gunnar, elskar þú Liverpool meira en mig?“

11. Nota ólífu- eða kókosolíu með venjulegu latex-smokkunum – þeir fara í klessu og gera þá ekkert gagn

Olía + smokkur = opin öryggisnæla + smokkur

12. Kreista bólu á leikfélaganum

Vissulega girnilegt – en hvorki staður né stund!

13. Nota heilan ananas sem anal-leikfang

„Nei Játvarður, við ætlum ekki að leika okkur með ananasinn!“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Eftir góða launahækkun keypti hann tvo nýja bíla í vikunni – Sá nýjasti kostar 62 milljónir

Eftir góða launahækkun keypti hann tvo nýja bíla í vikunni – Sá nýjasti kostar 62 milljónir
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Íslenska liðið tilnefnt sem lið ársins – Þú getur kosið hér

Íslenska liðið tilnefnt sem lið ársins – Þú getur kosið hér
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Páfinn bauð til heimsóknar – Gesturinn mætti ósofinn eftir ferð á vændishús og fékk sér kókaín í Vatíkaninu

Páfinn bauð til heimsóknar – Gesturinn mætti ósofinn eftir ferð á vændishús og fékk sér kókaín í Vatíkaninu
Fréttir
Fyrir 6 klukkutímum

Þóra Kristín kemur Þorgrími til varnar og gagnrýnir Huldu – „Kona sem kallar karlmann sem tjáir sig um börn ómenntaða risaeðlu“

Þóra Kristín kemur Þorgrími til varnar og gagnrýnir Huldu – „Kona sem kallar karlmann sem tjáir sig um börn ómenntaða risaeðlu“
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Ekki viss um að Jón Gnarr sé mesti grínistinn á þingi eftir þessi orð Jóns Péturs í gær

Ekki viss um að Jón Gnarr sé mesti grínistinn á þingi eftir þessi orð Jóns Péturs í gær
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Liverpool virðist vera að fá nóg og Nunez má fara í sumar

Liverpool virðist vera að fá nóg og Nunez má fara í sumar

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.