Það getur verið skemmtilegt að „googla“ sig sjálfan, finna einhverjar skemmtilegar myndir eða gamalt blogg sem maður var búin að gleyma, en stundum er það frekar erfitt og stressandi ef niðurstöðurnar eru vandræðalegar. Það er örugglega sérstaklega erfitt ef maður er frægur en Ryan Reynolds og Jake Gyllenhaal óttast ekki.
Í myndbandi fyrir WIRED svara Jake og Ryan spurningum um sig sem eru vinsælustu spurningarnar sem fólk leitar að á Google. Niðurstaðan er sprenghlægileg.
Ef þú hefur einhvern tímann spáð í því hvort annar hvor þeirra sé með húðflúr, hvort Ryan Reynolds noti eyeliner eða hvað Jake Gyllenhaal borðar, þá er þetta myndbandið fyrir þig.