Söngvarinn, húmoristinn og þúsundþjalasmiðurinn Pétur Örn Guðmundsson, eða Pétur Jesú eins og hann er oft kallaður, fór í herraklippingu um daginn. Hann sem sagt lét aftengja sáðrásir sínar til að verða ófrjór.
Pétur læðist venjulega ekki með veggjum og það árri heldur ekki við í þessu tilfelli – en hann birti myndband af ferlinu á facebook síðu sinni. Það var góðvinur Péturs, tökumaðurinn Benedikt Anes Nikulás Ketilsson, sem hjálpaði Pétri að vinna myndbandið – eins gott því hann var svæfður í aðgerðinni.
Sagan birtist fyrst á geysivinsælu Snapchati Péturs – gramedlan. Ef þið eruð ekki nú þegar fylgjendur ættuð þið að gerast það TAFARLAUST.
Ég fór fyrir nokkru í svokallaða herraklippingu. Með mér í för var hinn eini sanni BNAK eða Benedikt Nikulás Anes Ketilsson. Við tókum ævintýrið upp og hér er afraksturinn….pun (g) intended.Gerið svo vel, hér er listaverkið Frumur og geldingar.
Posted by Pétur Örn Guðmundsson on 23. mars 2017