Taylor Dean er 19 ára Youtube-ari sem býr til fræðslu- og dýramyndbönd. Hún deildi mynd af gullfisk í „hjólastól“ og netverjar eru að missa sig. Taylor fékk myndina senda frá vini sínum, Derek, sem vinnur í fiskabúð. Nýlega kom kúnni til Dereks með gullfisk sem var með sjúkdóm, swim bladder disease, sem gerir að verkum að hann getur ekki stjórnað flotkraftinum sínum. Bored Panda greinir frá þessu.
Það virkaði ekki að breyta mataræðinu eða vatninu hjá fiskinum þannig Derek ákvað að ganga skrefinu lengra til að hjálpa litla gullfiskinum, hann bjó til einskonar „hjólastól“ fyrir hann.