fbpx
Þriðjudagur 08.apríl 2025

Nýjustu fréttir af meðgöngu Beyoncé

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 22. mars 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það styttist óðum í tvíbura Beyoncé og Jay Z og heimsbyggðin getur varla beðið. Þetta er önnur meðganga Beyoncé og tekur þessi meðganga meira á heldur en sú fyrri þegar hún gekk með Blue Ivy sem er orðin fimm ára. Heimildarmaður E!News segir að þó að Beyoncé „sé orkuminni þessa meðgöngu,“ þá sé hún ekki að láta það eyðileggja reynsluna.

A post shared by Beyoncé (@beyonce) on

Hún elskar að vera ófrísk,

segir heimildarmaðurinn. Söngkonan viðheldur heilsusamlegu mataræði en leyfir sér að svindla á því þegar hún vill.

Hún leyfir sér að borða það sem hún vill og hefur ekki tekið þyngdaraukningunni sem neikvæðum hlut. Hún er örugg í sínu skinni sama hvaða stærð hún er og fagnar því,

sagði heimildarmaður E!News.

Beyoncé og Jay Z vita kyn tvíburanna en halda því leyndu í bili. Það hefur þó ekki stoppað aðdáendahópinn að koma með ýmsar getgátur og samsæriskenningar. Eins og þegar hún setti mynd af sér á Instagram í svörtum kjól með silfurlitaða eyrnalokka. Þá kom fram sú kenning að stjörnuparið ætti von á strákum, því Beyoncé var með sömu eyrnalokka í tónlistarmyndbandinu fyrir „If I Was a Boy.“

Beyoncé með eyrnalokkana umtöluðu.

Hjónaband þeirra er enn á besta stað samkvæmt heimildarmanni E!News.

Ástin [á milli Jay Z og Beyoncé] er ósvikin og alvöru. Jay er góður faðir og eiginmaður. Hann myndi gera hvað sem er fyrir Bey.

Beyoncé átti að koma fram á Coachella í næsta mánuði en þurfti að hætta við. Læknar ráðlögðu henni að slaka á svo hún frestaði framkomunni til 2018.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Enginn treystir Trump

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Handtekinn fyrir að gefa Grealish kinnhest á Old Trafford í gær

Handtekinn fyrir að gefa Grealish kinnhest á Old Trafford í gær
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Musk segir að svona séu „góða og slæma hliðin skilgreind“

Musk segir að svona séu „góða og slæma hliðin skilgreind“
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Guðmundur óttast nýjan veruleika og segir stjórnvöld þurfa að bregðast strax við

Guðmundur óttast nýjan veruleika og segir stjórnvöld þurfa að bregðast strax við
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Arftaki De Bruyne klár?

Arftaki De Bruyne klár?

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.