fbpx
Laugardagur 20.júlí 2024

Adele bauð samkynhneigðu pari upp á svið en þessu bjóst hún ekki við – Yndislegt myndband

Ritstjórn Bleikt
Þriðjudaginn 21. mars 2017 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óvænt atvik átti sér stað á tónleikum Adele í Ástralíu um helgina. Söngkonan bauð Wade Nicholson-Doyle og kærasta hans, Chris, upp á svið í Etihad-leikvanginum í Melbourne fyrir framan rúmlega 77 þúsund aðdáendur. Eftir að þeir höfðu heilsað Adele kom augnablikið sem enginn hafði reiknað með – nema Wade.

Hann kraup niður á hnéskeljarnar og bað Chris að giftast sér við ótrúleg fagnaðarlæti úr salnum. „Ég hafði ekki hugmynd um að þetta myndi gerast. Þetta var ekki skipulagt,“ sagði Adele þegar þessu óvænta bónorði var lokið. Hér má sjá myndband af þessu fallega augnabliki sem kom öllum rækilega á óvart.

https://www.youtube.com/watch?v=p39pbU-ykd8

Í viðtali við BBC segir Wade að þar sem hjónabönd samkynhneigðra séu ekki leyfð í Ástralíu ætli þeir að heitbindast hver öðrum í faðmi fjölskyldu og vina. Hann segist hafa verið í algjöru losti á sviðinu með Adele og sínum heittelskaða Chris.

„Að deila sviði með henni, þó ekki væri nema í fimm mínútur, er alveg hreint ótrúlegt. Við stöndum í þakkarskuld við hana,“ segir Wade.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Kaþólsku kirkjunni vantar 100 milljónir

Kaþólsku kirkjunni vantar 100 milljónir
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað

Flutningur ráðuneytanna langt kominn í glæsihýsið við Austurbakka – Óvíst um endanlegan kostnað
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Fer fram á skilnað frá barnsföðurnum sem ekkert hefur heyrst frá í sex ár

Fer fram á skilnað frá barnsföðurnum sem ekkert hefur heyrst frá í sex ár
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Hvernig tókst United að sannfæra Yoro? – Tilboð Real Madrid sagt miklu lægra

Hvernig tókst United að sannfæra Yoro? – Tilboð Real Madrid sagt miklu lægra
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Þarf að borga 2,3 milljónir í sekt út af ólöglegum Airbnb-rekstri – 110 brot og starfsemin talin ógn við öryggi ferðamanna

Þarf að borga 2,3 milljónir í sekt út af ólöglegum Airbnb-rekstri – 110 brot og starfsemin talin ógn við öryggi ferðamanna
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Yamal í fótspor Messi

Yamal í fótspor Messi

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.