fbpx
Sunnudagur 24.nóvember 2024

Djúsí samloka með heimagerðu spicy mayo

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Sunnudaginn 19. mars 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mæðgurnar Sólveig og Hildur hafa brennandi áhuga á grænmeti og matargerð, umhverfisvernd og lífrænni matjurtarækt. Þær halda úti bloggsíðunni maedgurnar.is þar sem þær deila ljúffengum uppskriftum og fékk Bleikt leyfi að birta færslu frá þeim þar sem farið er yfir uppskrift að djúsí samloku með heimagerðu spicy mayo.

Suma daga langar mann bara í almennilega djúsí samloku. Með mayonesi og öllum græjum. Svona innblásna af hinni alræmdu BLT-samloku (sem við mæðgur höfum reyndar aldrei smakkað). En þar sem við erum grænkerar miklir gerum við að sjálfsögðu okkar eigin útgáfu… og B-ið í beikon verður að F-i í feikon. Við vitum vel að við förum ekki alltaf hefðbundnu leiðina að hlutunum, og kannski rúlla einhverjir augunum núna, en það verður bara að hafa það. Upphaflega ætluðum við að skíra hana vegan BLT samloku, í stíl við innblásturinn… en þegar upp var staðið átti samlokan okkar kannski ekki margt sameiginlegt með beikonsamloku. En vá hvað hún var góð!

Við bjuggum til kókosflögu „feikon“ sem á að koma í staðinn fyrir beikon. Við höfum reyndar aldrei smakkað beikon, okkur grunar að góðir spæjarar finni kannski mögulega einhvern örsmáan mun á feikoni og beikoni… en feikon er að minnsta kosti rosalega bragðgott. (Við gerum stóran skammt til að eiga seinna á borgara og í salöt).

Svo er alveg ótrúlega auðvelt að búa til heimalagað vegan mayones. Ef þið hafið aldrei prófað, þá eruð þið heppin, því þetta kemur skemmtilega á óvart. Soðið af kjúklinabaunum (aquafaba) er orðið mjög vinsælt í allskyns matargerð í staðinn fyrir egg, við elskum að nýta þetta hráefni sem annars færi beint í vaskinn.

Það eina sem þarf að gera er að skella öllu nema olíunni í blandara og þeyta þar til freyðir. Svo er olíunni hellt hægt og rólega út í á meðan blandarinn er í gangi og allt í einu er komið mayo!

Við kunnum virkilega vel að meta bragðið af kaldpressaðri ólífuolíu og þess vegna völdum við að nota hana í mayo-ið okkar. En ólífuolíubragðið verður vel ríkjandi svo mörgum finnst betra að nota hlutlausari olíu. Ef þið eruð einlægir aðdáendur ólífuolíunnar mælum við með að prófa hana, því hún gerir mayo-ið vissulega afbragðs hollt. En það verður bragðmikið og ef þið viljið hefðbundnara mayo bragð er hlutlausari olía málið.

Skemmtileg innihaldsefni í mayones

Okkur finnst gott að eiga svona mayo til í ísskápnum, við gerum reglulega nýjan skammt. Ristuðu kókosflögurnar (feikonið) geymast líka vel, svo við eigum þær oft til líka. Og þá er okkur ekkert að vanbúnaði, við skellum í djúsí súrdeigs samloku.

Djúsí samloka með heimagerðu spicy mayo

2 súrdeigsbrauðsneiðar
2 salatblöð
smá spínat
2 sneiðar af bufftómat
½ avocado í sneiðum
4-5 laukhringir
4-5 brokkolí “blóm”, steikt á grillpönnu
1-2 msk kókosflögu “feikon”
4-5 msk spicy mayo

Heimagert spicy mayo

3 msk soð af niðursoðnum kjúklingabaunum (aquafaba)
1 msk sítrónusafi
1 msk eplaedik
1 tsk hlynsíróp eða önnur sæta
¾ tsk sjávarsalt
¼ tsk möluð sinnepsfræ (fást í kryddhillum stórmarkaðanna – má sleppa)
1 msk chilimauk eða harissamauk (má sleppa ef vill)
190 – 230 ml góð kaldpressuð olía – (bragðlítil ef þið viljið hlutlaust bragð – við notuðum bragðmikla jómfrúarólífuolíu)

Aðferðin

  1. Setjið allt nema olíuna í blandara og blandið í ca 1 mín á frekar hárri stillingu.
  2. Lækkið hraðann og takið annað hvort lokið af blandaranum eða ef það er lítill tappi á lokinu takið hann þá úr – og hellið olíunni mjög rólega í þunnri bunu þar til mayo-ið er orðið þykkt. Það getur verið að þið þurfið ekki alla olíuna, þið stoppið þegar mayo-ið er fullkomið.

Kókosflögu “feikon”

1 dl kókosflögur
1 msk hlynsíróp
½ tsk chipotle duft – eða reykt papirka
½ tsk sjávarsalt

Aðferðin

  1. Hrærið saman hlynsírópi, chipotle og sjávarsalti, bætið kókosflögunum út í og blandið saman við.
  2. Setjið bökunarpappír á ofnplötu, dreifið flögunum þar ofan á og bakið við 160°C í 15 -20 mín eða þar til þær eru tilbúnar.

Samlokan

  1. Ef þið eigið grillpönnu þá er fullkomið að nota hana bæði við að grilla brauðsneiðarnar og brokkolíið, notið annars bara ykkar pönnu.
  2. Setjið smá olíu á grillpönnu/venjulega pönnu og grillið brauðið öðrum megin.
  3. Á meðan pannan er heit, bætið smávegis af olíu á pönnuna og grillsteikið brokkolíið þar á, saltið með nokkrum sjávarsaltflögum.
  4. Smyrjið brauðið með mayo, setjið salat og spínat ofan á, síðan tómatsneiðarnar og avókadósneiðarnar, laukhringina og brokkolíið og endið á að setja kókosflögu “feikonið” á samlokuna og lokið með grillaðri brauðsneið sem búið er að smyrja með spicy mayo.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Sturlun í Filippseyjum – Varaforsetinn hótar að láta myrða forsetann ef hann gerir henni mein

Sturlun í Filippseyjum – Varaforsetinn hótar að láta myrða forsetann ef hann gerir henni mein
Fókus
Fyrir 4 klukkutímum

Ritdómur: Óljós eftir Geir Sigurðsson

Ritdómur: Óljós eftir Geir Sigurðsson
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Byrjunarlið Manchester United í fyrsta leik Amorim – Hojlund og Mainoo á bekknum

Byrjunarlið Manchester United í fyrsta leik Amorim – Hojlund og Mainoo á bekknum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Var um kyrrt þrátt fyrir árás Putin á Úkraínu – ,,Ég ætla ekki að forða mér burt“

Var um kyrrt þrátt fyrir árás Putin á Úkraínu – ,,Ég ætla ekki að forða mér burt“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.