Blæðingar kvenna! Ein af forsendum lífsins en svo óskaplega óþolandi á köflum. Það var Tinna Hallgrímsdóttir sem fékk spurninguna í fyrirsögninni – og hún varð nokkurn veginn kveikjan að Túrdögum HÍ sem Femínistafélag HÍ stóð fyrir í síðustu viku. Þar var metnaðarfull dagskrá og blæðingar kvenna voru skoðaðar út frá hinum ýmsu sjónarhornum.