Það er ótrúlegt en því miður satt að árið 2017 getur ein samkynhneigð persóna í Disney kvikmynd gert fólk alveg brjálað. Í Beauty and the Beast, sem er nýkomin út, er einn karakterinn opinberlega samkynhneigður. Að mínu mati er það frábært og löngu kominn tími til. En sumt fólk er haldið svo miklum fordómum að það er nánast eins og þau haldi að þessi mynd tákni enda alheimsins.
Sem dæmi þá hefur kvikmyndin verið bönnuð í Malasíu og í kvikmyndahúsi í Bandaríkjunum, bönnuð innan 16 ára í Rússlandi og eru margir hópar með stranga stefnu að vilja banna þessa mynd og sniðganga Disney, því í fyrsta sinn í sögu Disney er einn karakter í myndinni opinberlega samkynhneigður.
Margir foreldrar hafa lýst mikilli óánægju vegna málsins, af einhverjum ástæðum í ótta að börnin þeirra „smitist af samkynhneigð“ og að þetta sé „svo óeðlilegt“ og ekki „við hæfi barna.“ Því fjölbreytni er fáránleg og það á ekki að ala börnin sín upp í þeirri trú að þau geti verið þau sjálf og séu alveg jafn frábær sama hvaða kyni þau laðist að, því greinilega er það eitthvað sem maður getur stjórnað og valið. Ég tek það fram að þetta er kaldhæðni.
Fyrir rúmlega viku síðan deildi ein móðir færslu á blogginu thismodestmom.com þar sem hún lýsti því yfir að hún var búin að aflýsa rúmlega 600 þúsund króna ferð í Disneyland með alla fjölskylduna sína, vegna samkynhneigða karaktersins í Beauty and the Beast. Ég get ekki lýst því hvað manni þykir þetta sárt að heyra, að fólk sé með svona mikið óskiljanlegt hatur gegn kynhneigð fólks. Sem betur fer eru margir á sama máli og ég og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Í kjölfar fjölda ummæla og netpósts hefur hún eytt færslunni.
Önnur móðir ákvað að svara þessum fordómum á skemmtilegan hátt. Hún tók upp myndband þar sem hún segir frá því að hún ætli að aflýsa ferð til Disneyland vegna „greinilegrar gagnkynhneigðar“ stefnu garðsins, að Disney sé oft með aðalkaraktera sem eru gagnkynhneigðir og það vill hún sko ekki að börnin sín sjá og svo framvegis. Stórkostlegt andsvar sem sýnir hversu fáránlegir þessir fordómar gegn samkynhneigðum eru.