Framtíð raunveruleikaþáttanna Rob & Chyna er óljós um þessar mundir, en þrátt fyrir það er Blac Chyna ákveðin að halda arfleifð sinni uppi á einn eða annan veg. Hún er núna að láta búa til dúkkur af sér sjálfri, eins og maður auðvitað gerir. Samkvæmt TMZ lét Blac Chyna skanna andlitið og líkamann sinn svo hægt væri að prenta dúkku í þrívíddar útgáfu. Hún ætlar að gefa út dúkkurnar í maí og verða margar útgáfur af Blac Chyna. Hver dúkka kosta rúmlega átta þúsund krónur.
Fyrirtækið sem sá um að skanna Blac Chyna heitir My3DNA og hefur einnig framleitt míní eftirmyndir af Tupac og Drake.
https://www.instagram.com/p/BGukc2gx4EU/
https://www.instagram.com/p/BH0lgNLDwyR/
Það er spurning hvort að Kardashian-Jenner klanið geri það sama og Blac Chyna, þá gæti maður endurleikið uppáhalds atriðin sín úr KUWTK. Maður má láta sig dreyma!