Svala Björgvins er að fara að keppa í úrslitum söngvakeppni Rúv á laugardaginn. Lagið hennar heitir Paper og sumir hafa sagt lagið það „júróvisjónlegasta“ af lögunum sjö sem keppa á lokakvöldinu.
Viðbúið er að Rúv tjaldi til öllu því fínasta glimmeri sem fáanlegt er á eyjunni á laugardaginn. Við á Bleikt erum sjúklega spennt!
Við fengum Svölu til að svara nokkrum spurningum fyrir lesendur.
Kraftur, einlægni, frumleiki, metnaður, ástríða.
Persónulega finnst mér æðislegt hvað ég er búin að kynnast mikið af yndislegu fólki og hvað ég finn fyrir miklum stuðningi frá svo mörgum. Það er endalaus gleði og skemmtun í kringum þessa keppni. Enda snýst þetta líka um að hafa gaman.
Ég tek mér góðan tíma til að hugleiða og fer yfir hvað ég á að gera til að skila mínu besta á sviðinu. Það er mikilvægt að undirbúa sig vel andlega, en síðan fer ég að sjálfsögðu yfir ákveðnar raddæfingar. Ég sæki mikið í báðar ömmur mínar, og mun ég gera það sérstaklega á laugardaginn því þær veita mér mikinn innblástur og kraft.
Ég myndi segja Loreen, fyrir mér er hún miklu meira en söngkona, hún er listamaður.
Það verður gaman að sjá atriðið hans, flottur flytjandi.
Euphoria án efa.
Ég mun vakna mjög snemma og byrja á því að fá mér kaffi. Síðan mun ég taka smá hugleiðslu og klukkutíma upphitunarraddæfingar, klæða mig í fötin, svo ég labbi ekki nakinn út úr húsi (lol). Þetta er allavegana góð leið til að hefja daginn.
Selma Björns og Jóhanna Guðrún eru fyrir mér miklar fyrirmyndir. Þær stóðu sig svo sjúklega vel og höndluðu alla pressuna, stressið og væntingarnar þarna úti, enda báðar höfnuðu þær öðru sæti sem er besti árangurinn sem íslendingar hafa náð.
Snappið mitt er „Svalakali”, instragrammið er „Svalakali” og svo er það auðvitað Facebook-síðan!
Ég lifi nú bara í augnablikinu og er ekki farin að hugsa svona langt. Tek einn dag í einu, en það myndi væntanlega fara af stað mikil plön og plott varðandi það. En ég færi heim til L.A í millitíðinni til að sinna verkefnum þar sem ég hef sett á pásu út af söngvakeppninni.
Þá er ég bara fara fullt af stað með hljómsveitina mína Blissfull, þar sem við erum að fara að gefa nýtt lag og nýtt myndband bráðlega. Það er margt spennandi að fara að gerast hjá okkur hvað það varðar.
Vona sem flestir kjósi lagið mitt til þess að keppa fyrir Íslands hönd og alla Íslendinga, það yrði gríðarlegur heiður fyrir mig.