Sjónvarpskonan góðkunna Ragnhildur Steinunn er kynnir á Söngvakeppni Rúv sem er á dagskránni í kvöld – þar klæðist hún ofurhetjubúningi. Eins og vant er ræddi hún við keppendur eftir að allir höfðu stigið á svið. Daði Freyr og Gagnamagnið voru síðustu flytjendur kvöldsins og sátu í mestu makindum í „græna horninu“ þegar Ragnhildi bar að. Daði og félagar höfðu tekið með sér verulega girnilega köku, græna að utan og súkkulaðibrúna að innan.
Þegar Ragnhildi var boðið upp á kökusneið skipti engum togum að hún vakti máls á hægðum sínum og gaf í skyn að þær gætu orðið grænar á morgun.