fbpx
Fimmtudagur 18.júlí 2024

Hildur um Måns: „Er með samsæriskenningu um að svona fullkominn maður sé ekki til“

Ritstjórn Bleikt
Föstudaginn 10. mars 2017 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir vakna með lagið hennar Hildar á vörunum og raula Bammbaramm yfir morgunmatnum. Lagið er eitt þeirra sem keppir til úrslita í Söngvakeppni Rúv á laugardagskvöld. Hildur er, eins og aðrir keppendur, á fullu við að undirbúa sig fyrir stóru stundina þegar hún stígur á sviðið í Laugardalshöllinni, hún gaf sér þó tíma til að svara nokkrum spurningum fyrir lesendur Bleikt.

Gjörið svo vel!

Atriðið þitt í fimm orðum?

Glimmer-hjarta-gleði-stuð- Bammbaramm

Hvað er best við söngvakeppnina?

Þetta er ótrúlega skemmtilegt ferli, búin að kynnast svo mikið af frábæru fólki og svo er þetta frábær auglýsing fyrir mig sem tónlistarkonu.

Hvernig ætlar þú að undirbúa þig fyrir úrslitakvöldið?

Ég er búin að breyta mörgu í atriðinu þannig að ég er að vinna hörðum höndum við að láta það allt koma saman. Svo ætla ég bara að passa mig að vera úthvíld svo ég geti notið hverrar mínútu á laugardaginn!

Hvaða Eurovision-goðsögn dreymir þig um að hitta?

Loreen. Hún er nettasta goðsögnin so far.

Ertu spennt að hitta Måns?

Já af því að ég er með samsæriskenningu um að svona fullkominn maður sé ekki til.

Uppáhalds Eurovison-lag allra tíma?

Ég á lista með svona 20 uppáhalds lögum. En Minn Hinsti Dans er uppáhalds Íslenska allavega.

Hvernig muntu undirbúa þig á keppnisdag?

Ég mun reyna að borða góðan mat yfir daginn af því ég á það til að gleyma því í stressi, helst reyna að koma inn einni sundferð og svo bara fókusa á að vera í góðu skapi og njóta.

Hver er þín Eurovision-fyrirmynd?

Jóhanna Guðrún. Yfirvegaðari Eurovisionkeppanda er ekki hægt að finna.

Hvar er hægt að fylgjast með þér fram að keppni?

Ég er dugleg á snapchat: hildur.kristin og svo á Instagram og Facebook: hihildur

Hvað er framundan hjá þér ef þú vinnur?

Þá er það bara 200% Eurovision törn í 2 mánuði og lítið annað sem kemst að!

En ef þú vinnur ekki?

Þá er það að klára plötuna sem ég er að vinna í, sem ég er ótrúlega spennt að gefa út!

Eitthvað að lokum?
Ég vona bara að allir kjósi með hjartanu á laugardaginn það lag og atriði sem þeim finnst skemmtilegast!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 11 klukkutímum

Maðurinn sem var fyrirmyndin að Stjána bláa

Maðurinn sem var fyrirmyndin að Stjána bláa
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Forsetinn og sonur hans handteknir eftir úrslitaleikinn

Forsetinn og sonur hans handteknir eftir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Mbappe stoltur og hefur engar áhyggjur af númerinu – ,,Ég sé ekki hvað er á bakhlið treyjunnar“

Mbappe stoltur og hefur engar áhyggjur af númerinu – ,,Ég sé ekki hvað er á bakhlið treyjunnar“
Fókus
Fyrir 13 klukkutímum

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna

Atli tilnefndur til EMMY-sjónvarpsverðlauna
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Höskuldur brattur fyrir mikilvægan leik – „Kemur ekkert annað til greina en að keyra yfir þetta“

Höskuldur brattur fyrir mikilvægan leik – „Kemur ekkert annað til greina en að keyra yfir þetta“
Fókus
Fyrir 15 klukkutímum

Ozzy er kominn með nóg af myndböndum Britney – „Hvern einasta helvítis dag“

Ozzy er kominn með nóg af myndböndum Britney – „Hvern einasta helvítis dag“
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Er til í að skoða það að fá Davíð aftur í Breiðablik

Er til í að skoða það að fá Davíð aftur í Breiðablik
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Ómar áminntur af úrskurðarnefnd lögmanna – Spurði dómara hvaða starfsmann hann ætti að reka

Ómar áminntur af úrskurðarnefnd lögmanna – Spurði dómara hvaða starfsmann hann ætti að reka

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.