Kitten Kay Sera er bleikasta kona í heimi. Hún klæðist aðeins bleiku og dettur ekki í hug að klæðast öðrum lit. Allt heima hjá henni er líka bleikt. Veggir, gólfefni, húsgögn, heimilisáhöld og allt annað er bleikt! Það er eitt að elska bleikan lit, en Kitten tekur þetta á allt annað stig. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan til að sjá bleiku konuna í bleika heimilinu sínu tala um litinn bleikan! Við á Bleikt erum vitaskuld miklir aðdáendur konunnar!