Það gefur auga leið að Svala Björgvins ætlar sér að sigra Söngvakeppnina á laugardaginn og ná langt í Júróvisjón keppninni í Úkraínu í maí. Það byrjar auðvitað á því að læra af þeim bestu – enda bauð hún Selmu Björnsdóttur og Jóhönnu Guðrúnu á rúntinn á dögunum í skemmtilegri stælingu á Carpool Karaoke sem er fastur liður í spjallþáttum James Corden.
Eins og alþjóð veit hafnaði Selma í öðru sæti í keppninni árið 1999 með lagið All Out Of Luck. Jóhanna Guðrún náði jafnlangt og Selma árið 2008 með laginu Is It True. Og nú ætlar Svala alla leið með lagið sitt Paper. Í myndbandinu hér fyrir neðan má sjá Svölu rúnta um bæinn með sigursælustu Jóróvisjón dívum landsins þar sem þær syngja öll þrjú lögin og fara á Júró-trúnó sem enginn ætti að missa af.