Þið munið öll eftir Smith úr Sex and the City er það ekki? Kærasti Samönthu sem sigraði hjarta hennar og var fullkomin blanda af biluðum kynþokka og algjörri ljúfmennsku. Hann bræddi hjörtu víðsvegar um heiminn, eins og þegar hann rakaði hárið sitt til stuðnings Samönthu þegar hún var með krabbamein.
En við erum nú bara að tala um karakterinn Smith, en við skulum kíkja aðeins á leikarann bak við karakterinn, hann Jason Lewis. Hann byrjaði líf sitt í sviðsljósinu sem fyrirsæta og flutti til Parísar árið 1993 til að reyna fyrir sér í þeim bransa. Fljótlega var hann kominn á samninga við ýmis virt tískumerki og orðinn vel þekktur fyrir fyrirsætustörf sín. Hann byrjaði síðan að reyna fyrir sér sem leikari. Hann fór með gestahlutverk í Beverly Hills 90210 og bættist í leikarahóp Sex and the City fljótlega eftir það.
Hann hefur verið fjarri sviðsljósinu í dágóðan tíma, aðeins farið með lítil hlutverk í kvikmyndum eða þáttum og haldið sig til hlés í fyrirsætustörfum. Við skulum nú skoða hvernig hann lítur út í dag!
Ég gæti sett inn endalaust af myndum af honum, en læt þetta duga. Ef þú vilt skoða fleiri myndir kíktu á Instagram síðuna hans.