Það eru alltaf að koma skemmtilegar nýjungar á kynlífstækjamarkaðinn og í þetta sinn er það einhyrninga-dildó. Já þið heyrðuð rétt, einhyrninga-dildó! Þökk sér Geeky Sex Toys getur þú sameinað ást þína á einhyrningum og fullnægingum með því að nota dildó sem er í laginu eins og einhyrningahorn. Hreinir töfrar býst ég við!
Meðan sumum finnst kannski að þarna sé gengið aðeins of langt í ást á einhyrningum, að nota horn þeirra til að fá það, þá er greinilega markaður fyrir svona vöru. Og þú getur varla neitað að þín er örlítið freistað…
En skoðum aðeins betur hornið sjálft. Það kostar um 5500 krónur og er 14 sm í ummál og 19 sm á lengd. Fínustu stærðarhlutföll. Hornið er úr 100 prósent sílikon og er lýst svona á vefsíðunni:
„Þessi goðsagnakenndi dularfulli dildó mun hjálpa að kalla fram mest töfrandi fullnægingar. Sogskálin gerir skemmtilegan hlutverkaleik mögulegan þar sem þú getur búið til þinn eigin ævintýralega endi.“
Jáhá! Hvað segið þið kæru lesendur, hvernig lýst ykkur á einhyrninga dildóinn?