Búðu þig undir Disney-töfra! Eftirvæntingin hefur verið mikil fyrir frumsýningu tónlistarmyndbandsins við lagið „Beauty and the Beast“ með Ariönu Grande og John Legend. Lagið er fyrir samnefnda bíómynd með Emmu Watson í aðalhlutverki. Bleikt hefur áður fjallað um myndina sem verður frumsýnd í Bandaríkjunum 17.mars.
Sjá einnig: Fyrsta myndabrotið úr Beauty and the Beast með Emmu Watson í aðalhlutverki
Sjá einnig: Fyrstu myndirnar af Emmu Watson sem Fríða í Beauty and the Beast
Ariana er stórglæsileg í myndbandinu. Hún syngur og lítur út eins og sannkölluð prinsessa. John Legend er svo myndarlegur að það er eiginlega sárt. Með píanóið að vopni og guðdómlegu röddina sína setur hann nýtt viðmið fyrir prinsa, við værum allaveganna til að sjá hann leika prins í næstu Disneymynd. Við vitum að hann getur leikið, en það sýndi hann svo sannarlega í La La Land.
Sjá einnig: Sjáðu nýju plakötin af karakterum Beauty and the Beast
Lagið sem þau syngja er popp útgáfa af laginu sem Céline Dion og Peabo Bryson gerðu frægt árið 1991 þegar teiknimyndin kom út.