„Ó horfið á mig, ég er Ryan Gosling. Ég er með fullkomna beinabyggingu og góðleg augu. Farðu og eigðu mök við sjálfan þig Ryan Gosling!“ – sést Ryan Gosling lesa sjálfur. Það var að sjálfsögðu gárungurinn Jimmy Kimmel sem tók sig til og fékk nokkrar Óskarsstjörnur til að lesa upp andstyggilegar athugasemdir um sig af Twitter. Að sjálfsögðu hljóma þessi andstyggilegu orð fáránlega, og ólíklegt að nettröllin mundu segja þau við stjörnurnar augliti til auglits.