Diskó dívan og gleðibomban Þórunn Antonía stjórnar partý karíókí í kjallaranum á miðvikudagskvöldum á Sæta svíninu – Gastropub, ásamt heitasta Dj landsins DJ Dóru Júlíu! Þær sameina ást sína á tónlist, gleði og almennu glensi í skemmtilegasta kjallara landsins. Allir sem syngja fá að snúa lukkuhjóli og eiga tækifæri á að vinna glæsilega eða að minnsta kosti stórfyndna vinninga. Það eru allir velkomnir í Partý karíókí, söngfuglar og söngdívur, laglausir og taktlausir… enda er aðalmálið að hafa gaman. Það verður karíókípartý í kvöld en hér eru nokkrar myndir frá síðustu vikum.