Dómari hefur sett nálgunarbann á Chris Brown svo hann má ekki koma nálægt fyrrverandi kærustu sinni, Karrueche Tran. Karrueche segir að Chris hafi beitt sig ofbeldi, slegið sig og hrint sér niður stiga á meðan sambandi þeirra stóð. Hún ákvað í fyrstu að leita ekki til lögreglu en eftir að Chris byrjaði núna að hóta lífi hennar og senda henni skilaboð óskaði hún eftir nálgunarbanni. Samkvæmt nálgunarbanninu má Chris ekki heldur koma nálægt móður og bróður Karrueche.
Árið 2009 var Chris dæmdur fyrir að ráðast á Rihönnu þáverandi kærustu sína þegar þau voru á leiðinni úr fyrirpartýi fyrir Grammy verðlaunin.